samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Samgönguáætlun er eins og staðan er núna upp á 360 milljarða, það eru fjárheimildirnar þannig að við getum að sjálfsögðu ekki farið út fyrir það. En verði verkefni valin, sem eru stjörnumerkt og passa í innviðafélagið, þá myndast þarna rými. Og ef við náum ekki að fara í öll þessi verkefni þá stendur auðvitað vilji ríkisstjórnarinnar til þess að fara í öll þessi verkefni, við munum þá bara gera það á lengri tíma. Það sem mér finnst það góða við innviðafélagið er auðvitað f-in þrjú; flýta, fjármagna og framkvæma. Þetta er bara verkfæri, þetta er bara rammi, innviðafélagið, til að flýta framkvæmdum. Ef við ætlum að gera þetta allt bara með samgönguáætlun og bara með tekjum úr ríkissjóði þá mun þetta taka miklu, miklu lengri tíma. Þetta er bara rammi, þetta er bara verkfæri til að flýta framkvæmdum og ég held að það sé mjög mikilvægt að við horfum á þetta í því ljósi.