samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög mikilvæga spurningu. Þegar við erum að horfa á framtíðarskipan samgöngumála Vestmannaeyja þá þarf að klára þessar rannsóknir sem snúa að mögulegum göngum. Það þarf að meta hvort þau séu raunhæfur kostur eða ekki. Ég hef verið að hvetja hæstv. ráðherra til að taka af skarið og vinna með þessum hópi sem stendur að baki Eyjagöngum til að fá úr því skorið.
Hv. þingmaður spyr um innviðafélagið í þessu sérstaka samhengi. Ég verð að viðurkenna að það liggur í raun og veru ekki ljóst fyrir, eins og ég hef lesið málið, með slíka framkvæmd, þ.e. sem er á vegum ákveðinna frumkvöðla og fjárfesta sem sjá einfaldlega tækifæri í að fara í verkefni og hafa unnið mikla vinnu hingað til, hvort innviðafélagið útiloki það og vilji fá allt inn í félagið sjálft eða ekki. Þetta er í mínum huga dæmi um spurningu sem verður að fá úr skorið þegar frumvarpið verður rætt hér í þinginu á næstu dögum.