samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Forseti. Ég þakka svarið. Ég held að við þurfum að passa okkur á því að drepa alls ekki niður framkvæmdagleði einstaklinga sem vilja hjálpa okkur. En í seinna andsvari langaði mig að reyna að átta mig aðeins á þessari skiptingu milli samgönguáætlunar og innviðafélags. Það liggur fyrir til að mynda að ef hringvegur um Kjalarnes, sem er áætlað að kosti 6,3 milljarða, færi út úr samgönguáætlun af því að innviðafélagið tæki hann að sér, þá myndi losna um þessa peninga. En það sem er minna talað um eru aðrar framkvæmdir, tökum sem dæmi Setbergsgöng eða göng undir Öxnadalsheiði eða göng um Reynisfjall. Ef þær myndu ekki fara inn í innviðafélagið þá erum við komin í skuld, þá bætist í inni í samgönguáætlun. Erum við þá ekki bara að segja að þetta sé ekki raunhæft af því að þá eru engir fjármunir til að fara í þessar vegaframkvæmdir? Alla vega er ekki gert ráð fyrir þeim í fjármálaáætlun ef svona fer. Þarf þetta ekki að skýrast aðeins betur?