samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir aðra góða spurningu. Það er lykilmál núna þegar við erum að ræða um samgönguáætlun að það sé skýrleiki í samhengi við innviðafélagið vegna þess að þetta hangir svo sterkt saman. Í samhenginu varðandi Kjalarnesveg þá má í raun og veru segja að hugsunin í meirihlutaálitinu sé þannig hvað varðar þær athugasemdir sem bárust, sem sneru t.d. að ónógu fjármagni í allt frá sjóvörnum yfir í einstaka framkvæmdir, nýframkvæmdir, að ef það tækist að færa verkefni yfir til innviðafélagsins, af því að það er fjármagnað í samgönguáætlun, þá myndi skapast ákveðið fjármagn til að fara í fleiri verkefni sem meiri hlutinn hefur lagt til. Ég held að það séu góð og mikilvæg verkefni og ég styð þá tillögu. (Forseti hringir.)
Nú hef ég ekki náð að klára seinni hlutann. Það er spurning hvort ég hleypi hv. þingmanni aftur að og svari í seinna andsvari.