samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Já, það er rétt að það er nauðsynlegt bæði að móta þessa áætlun en ekki síst, eins og hv. þingmaður kemur inn á, að tímasetja framkvæmdir. Ef maður hugsar til þess að nýi Herjólfur, sem er sjö ára gamalt skip, er þegar búinn að vera að bila af og til þá veitir ekkert af því, ég tala nú ekki um ef við horfum á þörfina hringinn í kringum landið því að það eru fleiri samfélög sem reiða sig á ferjur. Við þurfum að vera miklu markvissari í þessari vinnu en hingað til. Ég myndi því vilja að við færum af stað í slíkar aðgerðir og værum að horfa á þetta systurskip til að byrja með á Breiðafirði til að auka fyrirsjáanleika fyrir ólík samfélög sem eiga allt sitt undir þar. Ég mun nýta síðara andsvar til að koma aðeins inn á fjárfestingar og innviðafélagið.