157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:21]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir svarið. Það kristallast bæði í spurningu minni og svari hv. þingmanns að það er eiginlega fyrir fram gefið að þær væntingar sem búið er að gefa fólki varðandi þessar ferjuleiðir munu ekki ganga upp. Það kristallar einnig það sem ég hef nefnt hér í fyrri ræðum mínum og andsvörum, að væntingastjórnunin sem var til staðar þegar var verið að tala um að leggja á kílómetragjald, hækka vörugjöld, hækka kolefnisgjald, hækka veiðigjald o.s.frv., var allt gert með þeim forsendum og rökstutt með því að þetta myndi verða svo gríðarleg innspýting í uppbyggingu á samgöngumannvirkjum þjóðarinnar. Spurning mín til hv. þingmanns er einfaldlega þessi: Er það mat hv. þingmanns að allir þessir skattar séu með greinanlegum hætti að koma fram í metnaðarfullum plönum eða klikkaði væntingastjórnunin?