samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég get alveg viðurkennt að miðað við yfirlýsingar um að rjúfa kyrrstöðu, keyra vélarnar og byrja að bora, þá var mín vænting sem þingmaður í umhverfis- og samgöngunefnd að það yrðu meiri peningar settir í samgönguáætlun. Það er vissulega ákveðin aukning sem fer í viðhald m.a., sem er jákvætt, en í takt við þær væntingar sem var búið að setja fram þá erum við ekki að ná nægilega mikilli fjárfestingu og það hversu mikið næst að gera hangir mjög saman við hversu áreiðanlegt þetta innviðafélag verður. Það er því eitthvað sem skiptir mjög miklu máli að virki og virki, svo ég komi inn á fyrri umræðu, með þeim hætti að það skapist rými fyrir landsbyggðarverkefni sem eru ekki jafn arðbær og að það sé passað upp á að þó að það sé verið að færa verkefni yfir til innviðafélags þá sé ekki verið að draga saman seglin í fjármögnun samgönguáætlunar á sama tíma þar sem sitja inni verkefni sem eru kannski ekki jafn arðbær. Þetta heildarsamhengi skiptir máli ef við ætlum að ná árangri.