157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:24]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir prýðisgott innlegg. Mig langar að vera á svipuðum nótum og hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og ræða aðeins við þingmanninn um ferjuáætlun og ferjumálin, m.a. vegna þess að nú kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans að það er hvatt til þess að það verði hafist handa við að búa til ferjuáætlun. Mig langar að spyrja þingmanninn hvort hún telji að slíkt muni leysa þann gríðarlega mikla vanda sem ferjumálin eru í. Í annan stað þá vitum við náttúrlega að vandinn í samgöngum til og frá Eyjum er gríðarmikill og það er náttúrlega í kjördæmi þingmannsins. (Forseti hringir.) Telur þingmaðurinn ekki að það þurfi að leysa þessi mál heildstætt? Þegar verið er að taka Baldur á Breiðafirði og flytja hann til þá hefur það svo mikil áhrif á önnur svæði.