157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:25]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mikilvæga spurningu. Hún snertir á þessu stóra orði sem skiptir öllu þegar kemur að samgönguáætlun og líka ferjumálum sem er fyrirsjáanleiki, fyrirsjáanleiki og áreiðanleiki, eitthvað sem samfélög verða að geta treyst á. Ég held að ferjuáætlun sé jákvætt skref en það sem þarf að koma til ef hún á einmitt að geta verið heildstæð lausn, eitthvað sem virkar, eitthvað sem fólk getur treyst á, þá verður hún að vera tímasett, hún verður að vera fjármögnuð og hún verður í raun og veru að vera lögbundinn hluti, í mínum huga, það er alla vega eitthvað sem er vert að skoða, af samgönguáætlun þannig að hún sé algerlega niðurnjörvuð en ekki einhvers konar samantekt. Þannig að ég fagna þessu fyrsta skrefi en ég veit að það þarf að gera meira.