samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Við vorum bæði á afar fjölmennum íbúafundi í Vestmannaeyjum í vikunni þar sem var einmitt verið að ræða samgöngumál Vestmannaeyja ásamt hæstv. innviðaráðherra. Það kom ýmislegt þarna fram, kannski ekki nýtt beint, en það kom ýmislegt fram, t.d. stofnun viðbragðshóps og að það væri í bígerð að gera ferjuáætlun eins og meiri hluti samgöngunefndar gerir ráð fyrir. Það sem ég hef áhyggjur af og vil spyrja hv. þingmann að er að jafnvel þótt það sé gerð áætlun um smíði ferja og jafnvel þótt það sé gerður viðbragðshópur þá vantar að fjármagna þetta. Hvað hefur hv. þingmaður um það að segja? Ég ætlaði líka að spyrja um það að rætt var um að það væri kannski ein af mörgum lausnum að gera „bunkera“ þarna við höfnina þegar veður myndi leyfa. (Forseti hringir.) Ég get ekki séð og hef ekki séð að það sé fjármagn í það verkefni í þessari áætlun.