samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mikilvægar spurningar. Ég held einmitt, ef við horfum á fundinn, ef við horfum á stöðuna eins og hún hefur verið í vetur og vor, og horfum bara á nýjustu athugasemdir eins og ég var að fjalla um frá Vinnslustöðinni, að það sem er verið að kalla eftir til skemmri tíma er bara fjármagn sem er að hluta til a.m.k. til staðar hjá Vegagerðinni í viðhald og að það sé bara eyrnamerkt í viðbótardýpkanir. Eins og var fjallað um á fundinum þá væri hægt að gera breiðari dýpkanir sem væri ákveðin fyrirbyggjandi aðgerð. Ég held að það skipti máli að það sé kýrskýrt fyrir næsta vetur, bara til að nefna dæmi um einhverja aðgerð, að slíkar dýpkanir séu fullfjármagnaðar þannig að það þurfi ekki að vera þannig þegar það kemur upp eitthvert ástand að það þurfi að byrja á því að skoða (Forseti hringir.) hvernig hægt sé að fjármagna eitthvað. Þetta er bara dæmi um skýrleika sem ég held að sé nauðsynlegur (Forseti hringir.) og sé nauðsynlegt að við krefjum ríkisstjórnina um.