157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:32]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég ætlaði að spyrja hv. þingmann einnig um það sem kom fram og er ekkert nýtt, um lagfæringar á Landeyjahöfn sem gætu falist í því að lengja báða hafnargarðana örlítið út fyrir í boga til að tefja fyrir sandburði og grynnkun hafnarinnar sem gæti verið ágætislausn. Nú liggur fyrir að niðurstöður mælinga gætu verið sæmilega jákvæðar. En það sem fylgir ekki sögunni og það sem Vestmannaeyingar vilja auðvitað fá er að ef menn ætla að ráðast í þessar framkvæmdir, þó að það séu einhver ár í það eins og kom fram á fundinum, við viljum auðvitað stytta þann tíma, þá fylgir ekkert fjármagn með þessum framkvæmdum ef niðurstaðan verður sú að þetta muni bæta höfnina eitthvað. Það fylgir ekkert fjármagn þannig að menn eru ekki að sjá úrbætur á Landeyjahöfn sem er mikilvægasta og fljótvirkasta aðgerðin núna til að laga samgöngurnar. Það er ekkert fjármagn.