157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:34]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta er grundvallarspurning þegar kemur að aðgerðum sem á að ráðast í. Eins og kom fram á fundinum þá á, eftir að þessi skýrsla hefur verið fullunnin, að skoða hvaða leið á að fara eða þá ætti að skoða hvaða leiðir á að fara. Það liggur alveg ljóst fyrir að stærðin á þessu verkefni er slík að það er ekki að fara í gegnum Hafnabótasjóð. Stærðin á þessu verkefni er með þeim hætti að það hlýtur að þurfa að gera ráð fyrir fjármagni í fjármálaáætlun. Fjármálaáætlun er til 2030 þannig að við hljótum að sjá einhverjar leiðir birtast þar sem snúa að þessu verkefni. Ég held að það sé mikilvægt að það sé þannig því að það sem kemst ekki í fjármálaáætlun er ekki í áætlunum ríkisins. Það er hluti af því sem við munum þurfa að fylgja eftir þegar fjármálaáætlun verður rædd hér í þinginu í næstu viku því að án fjármagns (Forseti hringir.) er í sjálfu sér ekkert tryggt, þó að mikill sé vilji hjá öllum þingmönnum kjördæmisins. Án fjármagns er ekkert tryggt.