157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:54]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög yfirgripsmikla og góða ræðu. Ég vil taka undir þessa áherslu að innviðauppbygging er besta stefnan ef landið allt á að rísa, ef ólík byggðarlög eiga að rísa, þá þarf ekki að hugsa um einhverjar björgunaraðgerðir.

Mig langar aðeins að tala um Isavia í samhengi við innviðafélagið sem nú er verið að leggja til af því að ég tek svo undir það sem hv. þingmaður kom inn á varðandi Egilsstaðaflugvöll, Akureyrarflugvöll og Höfn í Hornafirði, flugvöllinn þar. Þetta eru kjarnainnviðir sem við þurfum að fjárfesta mikið í. Það hefur hins vegar verið lenskan að ákveðnu leyti eða upplifun heimamanna að Isavia hafi ekki alltaf verið að vinna með þessum flugvöllum heldur verið eins konar ríki í ríkinu þar sem hefur gengið erfiðlega fyrir samgönguráðherra að þrýsta framkvæmdum áfram.

Því langar mig að spyrja hv. þingmann í samhengi við innviðafélagið: Hefur hv. þingmaður einhverjar áhyggjur af því að félagið verði einhvers konar ríki í ríkinu? Það verður undir fjármálaráðherra, ekki samgönguráðherra, (Forseti hringir.) af því að ég veit að við viljum tryggja þessa skilvirkni og ábyrgð sem við erum kjörin til að veita aðhald á, þannig að ég vil heyra sjónarmið hv. þingmanns.