samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir hennar andsvar og spurningar. Þetta eru rosalega góðar og mikilvægar spurningar og erfitt að fara yfir þær á einni mínútu. Varðandi Isavia þá hef ég mikið velt fyrir mér norsku leiðinni, hvort við eigum að skoða að fara hana þar sem þau eru eins og við með félag, Avinor, sem er þeirra Isavia, sem er þó ekki með Gardermoen, þeirra stóra flugvöll, aftengdan frá innanlandsflugvöllunum heldur eru tekjur af Gardermoen notaðar til að fjárfesta í varaflugvöllum úti á landi. Við höfum aftur á móti gert það þannig að við höfum sett innanlandsflugvellina í dótturfélög og síðan er uppbygging þar fjármögnuð af fjárlögum í staðinn fyrir að nota tekjur af Keflavíkurvelli. Mér skilst að það séu kostir og gallar við bæði kerfin. Hef ég áhyggjur af því að innviðafélagið gæti orðið ríki í ríkinu? Auðvitað hefur maður einhverjar áhyggjur af því. Það er kannski einn af göllunum sem eru til staðar sem maður þarf að vega á móti kostunum við að stofna svona innviðafélag en við höfum að einhverju leyti, eins og má sjá í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar, reynt að koma til móts við það með aðkomu Alþingis þegar innviðaráðherra gerir samninga við innviðafélagið.