157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:57]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að beina seinni spurningunni að málefni sem ég veit að brennur á hv. þingmanni, sem eru Fjarðarheiðargöng. Í samhengi við þennan fyrirsjáanleika, sem ég tek svo undir því að það eru allir að taka ákvarðanir út frá því sem er sett á samgönguáætlun, langar mig að spyrja, í samhengi við innviðafélagið sem er núna verið að reyna að ýta úr vör og allt er tilbúið með Fjarðarheiðargöng, eins og við vitum öll og kemur fram í umsögnum sveitarstjórnar Múlaþings, frá Vegagerðinni og öðrum: Telur hv. þingmaður það vera eitthvað fast í hendi varðandi tímasetningu á því hvenær slíkt innviðafélag myndi frekar skoða þau göng en bara göng í gegnum Reynisfjall eða einhver önnur göng? Og hvernig getum við passað upp á þegar það er verið að setja fram svona gangakosti sem eru svona samfélagslega mikilvægir að það sé einhver tímalína sem er einhver pólitísk ábyrgð sem tengist í samhengi við innviðafélagið?