samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Aftur, þá er ein mínúta stuttur tími til að svara að einhverju leyti djúpum spurningum er varða innviðafélagið og samgönguáætlun og hvernig þetta allt saman hangir saman. Það er náttúrlega alveg rétt sem hv. þingmaður kemur inn á að það er ekkert í hendi. En það sem ég t.d. bind vonir við er að ef innviðafélagið tekur til sín mikið af þeim verkefnum sem eru svo sannarlega arðbær sem eru nálægt höfuðborgarsvæðinu og við meginumferðaræðar eða þar sem umferðarþunginn er hvað mestur þá skapast svigrúm í A-hluta ríkissjóðs til að ráðast í verkefni eins og Fjarðarheiðargöng. En eins og við sjáum núna í þessu nefndaráliti umhverfis- og samgöngunefndar er sá tími ekki núna en ég vona að sá tími komi sem fyrst. En það sem við þurfum náttúrlega líka að gera er að ná hallalausum ríkissjóði, greiða niður skuldir ríkisins og minnka vaxtabyrði. Við erum að greiða hundrað og eitthvað milljarða í vexti. Það eru peningar sem mættu mín vegna gjarnan fara í Fjarðarheiðargöng. Vonandi, og því fyrr því betra, skapast því svigrúm til að ráðast í göng undir Fjarðarheiði.