samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir virkilega góða ræðu, virkilega góða. Mig langar að ræða við hann varðandi jarðgöngin. Fyrst vil ég segja þetta: Ég skil fullkomlega vonbrigði Austfirðinga varðandi Fjarðarheiðargöng þar sem mér skilst að allt sé klárt í að hefja borun samkvæmt síðustu samgönguáætlun og búið að verja hundruðum milljóna í undirbúning. En nú hefur hæstv. innviðaráðherra kynnt nýja áætlun. Þar er hann með aðra forgangsröðun og hefur sett fremst Fljótagöng, sem eru jú einnig mikilvæg. Þetta er voða erfitt af því að þetta er náttúrlega allt mikilvægt, ég ætla ekkert að halda öðru fram. Hann hefur einnig sagt að áætlunin sé að það verði byrjað að bora 2027. Telur þingmaðurinn það raunhæfa áætlun að það verði byrjað að bora 2027?