157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:03]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hann er greinilega bjartsýnni en ég. Ég hef ákveðna fyrirvara við að það verði hægt að byrja að bora 2027 en vonandi standast þessar áætlanir. Ég tók eftir því að þingmaðurinn sagði í ræðunni sinni áðan að hann hefði áhyggjur af því „ef“ innviðafélagið — það er allt algjörlega upp í loft og enginn veit hvað getur farið þarna undir. En ég ætla hins vegar ekki að ræða það í þessu andsvari. Nú á ég 22 sekúndur eftir og ég ætla að ræða farnetið. Ég hef í mörgum andsvörum verið að tala um farnetið og hef rætt það víða, útfösun á 2G og 3G. Það eru holur í kerfinu og þetta er gríðarlega mikið öryggismál. Ég veit að bara í mínu kjördæmi eru mjög miklar holur og miklar áhyggjur hjá einstaklingum og bara vegfarendum. Hvernig er staðan í kjördæmi þingmannsins varðandi farnetsmálin og útfösun á 2G og 3G?