samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég verð að viðurkenna að ég hef fengið fleiri en eitt erindi frá til að mynda sveitarfélögum í mínu kjördæmi þar sem er verið að fjalla um holurnar sem eru til staðar og holur sem hafa sums staðar stækkað vegna þess sem hv. þingmaður talar um, vegna útfösunar á 2G og 3G. Ég er ekki nógu vel að mér í þessum málum þannig að ég get ekki séð fyrir mér kjördæmi mitt á korti og hvar holurnar eru, ekki jafn vel og hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir og sennilega hv. þm. María Rut Kristinsdóttir líka sem hafa talað mikið um farnetið. Ég er ekki nógu vel að mér í þessu en síðan náttúrlega hefur maður ágæta tilfinningu fyrir þessu líka eftir að hafa keyrt um. Maður veit sirka hvar maður er með símasamband og hvar ekki. En þetta er svo sannarlega mjög mikilvægt öryggismál og eitthvað sem mér finnst vel til þess fallið að vera á listanum yfir verkefni sem verður ráðist í ef svigrúm myndast. Mér finnst t.d. að hrunvarnir á Suðurfjarðavegi séu þess eðlis að ef ekki tekst að fjármagna þær með þessu svigrúmi þurfi að vera eitthvert plan B eða plan C um hvernig þær verði þá fjármagnaðar, af því að þær eru of mikilvægar. Að mínu mati er ekki hægt að sleppa þeim.