samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir prýðisgóða ræðu. Það var margt í henni sem ég get tekið undir. Einkum vil ég þó ræða hér og varpa fram spurningum varðandi samfellu í samgönguáætlunum milli kjörtímabila. Ég er sammála hv. þingmanni um að það sé óneitanlega dálítið sérstakt að hér sé útbúið plan til 15 ára og síðan sé því að einhverju leyti verulega umbreytt þegar skipt er um ráðherra. Ég held að það sé ekki til farsældar fallið. Þetta er kannski einmitt ástæðan fyrir því að það gengur jafnvel ekki nægjanlega vel að samþykkja ákveðna þætti í samgöngum vegna þess að menn sjá þá fyrir sér að það sé skynsamlegra að fella viðkomandi tillögu eða reyna að halda henni í gíslingu til þess að tryggja að þegar hagstæðari ráðherra tekur við þá fái kjördæmi viðkomandi að njóta ávinningsins. Það er auðvitað dálítið sérstakt. Þess vegna langar mig til að forvitnast um það hjá hv. þingmanni hvaða ráð hann telur skynsamleg til þess að við tryggjum betur samfellu í þessari áætlanagerð.