157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:07]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans spurningu sem er erfitt að svara á svona stuttum tíma. Ég vil byrja á að taka það fram að ég er ekki bara að gagnrýna hæstv. ráðherra fyrir að hafa breytt forgangsröðun jarðganga vegna þess að ég held að það hafi líka, þegar samgönguáætlun 2020 var samþykkt samhljóða hér á þingi, verið augljóst að það var t.d. ekki búið að tryggja fjármagn fyrir Fjarðarheiðargöng, jafnvel áður en áföllin síðan dundu yfir, Covid og Reykjaneseldar. Það var ekki búið að gulltryggja að það yrði ráðist í Fjarðarheiðargöng þannig að einhverju leyti var, held ég, verið að lofa upp í ermina á sér á þeim tíma og það er síðan vandamál sem í rauninni erfist. Það sem ég held að þurfi til að komast út úr þessu er einmitt að tileinka sér þennan sænska hugsunarhátt sem ég var að tala um, að við sameinumst öll, sem flestir flokkar, um raunhæfa áætlun sem síðan, (Forseti hringir.) sama hvaða ríkisstjórn er við völd nokkrum árum síðar, fólk og fyrirtæki geta treyst á að muni halda.