samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir svörin og ég get tekið undir það sem hann nefndi hér síðast um mikilvægi þess að halda samfellu í því að taka ákvarðanir hér. Mig langar til að varpa annarri spurningu til hv. þingmanns varðandi það hvort við séum ef til vill að færast of mikið í fang þegar við erum að setja okkur t.d. markmið varðandi áherslur og aðgerðir. Vil ég í því sambandi nefna að t.d. í núverandi áætlun er gert ráð fyrir einum 17 atriðum sem beri að taka tillit til við framkvæmd samgönguáætlunar. Ég ætla að leyfa mér að spyrja hv. þingmann: Er ekki skynsamlegra að við reynum að velja punktana betur og fækka þeim áhersluatriðum sem til greina koma til þess einfaldlega að vera með raunhæfari niðurstöðu og við séum ekki að smyrja of þunnt þegar við erum að útdeila fjármagni?