157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:10]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talar um áhersluatriði. Þá geri ég ráð fyrir að hann sé að tala um þessi 17 atriði, (Gripið fram í.) já, akkúrat. Ég skil hvert hv. þingmaður er að fara en að sjálfsögðu, þegar við erum að tala um allt samgöngukerfið eins og það leggur sig og ekki bara vegakerfið heldur einnig flugvelli og hafnir og allt saman, þá er eðlilegt að það sé að mörgu að huga þegar kemur að uppbyggingu á þeim mannvirkjum. Hvort þessi 17 atriði séu of mörg skal ég ekki segja. En mér þykir kannski mikilvægara, eins og var að einhverju leyti kannski rauður þráður í minni ræðu, að það sé eitthvað sem við getum sem flest hérna sameinast um þannig að þegar um er að ræða 15 ára áætlun, það eru í rauninni fjögur kjörtímabil, þá sé það eitthvað sem fólk getur treyst á að haldi þótt það verði jafnvel miklar sveiflur hér inni á þingi.