157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:12]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir prýðisræðu, margt mjög gott í ræðunni. Ég vildi einmitt taka undir það sem þingmaðurinn kom inn á að þegar við tölum um byggðamál þá er kannski raunverulega stærsta málið innviðamál, bara til að byggja upp innviði. Það er það sem sá sem hér stendur hefur lagt mikla áherslu á síðustu tíu ár á þingi, t.d. að byggja upp Akureyrarflugvöll, skapa forsendur fyrir millilandaflugi, byggja upp flutningskerfi raforku til að skapa forsendur fyrir t.d. gagnaver á Akureyri, fjarskipti, ljósleiðarasambönd og slíkt vegna þess að innviðir búa allt þetta til. Þetta er hlutverk okkar hér í þinginu, að skapa möguleika og framkvæma hluti. Mig langaði síðan bara rétt að heyra hvaða skoðun hv. þingmaður hefur á varaflugvallargjaldinu til að fjármagna uppbyggingu á Akureyri og Egilsstöðum og hefur verið töluvert í umræðunni hér í dag og í gær og snýr að aðflugsljósum. Á ekki að halda sig við þá hugmyndafræði sem hefur verið, að varaflugvallargjaldið sé til að fjármagna þessa hluti í staðinn fyrir að veikja varaflugvallargjaldið og fara með fjármuni annað og breyta þessu bixi, (Forseti hringir.) halda sig við þessa hugmyndafræði sem hefur verið um varaflugvallargjaldið og framkvæmdir?