samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans andsvar. Ég tel mig vita að ég og hv. þingmaður séum nokkurn veginn sammála um varaflugvallargjaldið. Ég held ég viti hvert hv. þingmaður er að fara með spurningunni. Jú, ég er sammála hv. þingmanni, ef ég skil hann rétt, að það sem rennur inn í ríkissjóð í formi varaflugvallargjalds eigi að renna til baka til varaflugvallanna. Það myndi ekki falla undir þá hugmyndafræði um varaflugvallargjaldið að t.d. ný flugstöð við Reykjavíkurflugvöll, þó að hún sé sannarlega mikilvæg, yrði fjármögnuð með varaflugvallargjaldi enda er það ekki öryggismál í þeim skilningi.
Ég myndi vilja spyrja hv. þingmann á móti af því að hann hefur kannski kynnt sér það betur en ég að hvaða leyti varaflugvallargjaldið í þessari samgönguáætlun er að renna til þess sem það á að renna samkvæmt hv. þingmanni.