samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Það hefur verið kynnt í þessu samhengi að hæstv. innviðaráðherra hyggist nýta varaflugvallargjaldið til annarra flugvalla, bara innanlandsflugvallakerfisins í heild sinni. Lögin segja annað um varaflugvallargjaldið, það eru þessir þrír vellir sem varaflugvallargjaldið á að fara til; Akureyrarflugvöllur, Egilsstaðaflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur. Ég tek undir það sem hv. þingmaður kom inn á varðandi mikilvægi varaflugvallargjaldsins að það renni til verkefna sem snúa að flugöryggi og flugöryggismálum. Það er lykillinn á bak við það. Ég vil síðan benda rétt á Avinor, norska dæmið. Það er til skýrsla sem starfshópur þar sem ég var formaður skilaði af sér á sama tíma, með Loftbrúna og þá hugmyndafræði og varaflugvallargjaldið, þar sem er einmitt fjallað um Avinor og hvernig við gætum tekið upp það kerfi á Íslandi til að fjármagna kerfin okkar.
Svo vil ég taka undir það sem kom fram hjá hv. þingmanni að sameinast um stór mál. Innviðafélagið er klárlega svoleiðis mál. Það hefði hins vegar mátt vanda alla samvinnu flokka þar vegna þess að eftir því sem maður fer að kynna sér málið betur þá virðist vera svona — ég er sammála því að fara þessa leið en það þarf að bæta strúktúrinn í vinnslunni í þinginu í málinu.