157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:16]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni og er í rauninni bara sammála honum í því sem snýr að varaflugvallargjaldinu. Það má alveg velta því upp hvort það sem lagt er til í nefndaráliti meiri hluta um að nýta það svigrúm sem skapast mögulega við það að umbætur á Kjalarnesvegi fari til innviðafélagsins til að setja upp aðflugsljós á Akureyrarflugvelli samræmist hugmyndafræðinni eða ekki. En aftur á móti fagna ég því að það væri gert frekar en að það yrði ekki gert, ég fagna allri hreyfingu aðflugsljósanna framar í tíma. Ég held að ég og hv. þingmaður séum sammála um að það sé ekkert endilega víst að það samræmist lögunum. Síðan er náttúrlega þetta flækjustig eins og við þekkjum í lögum um opinber fjármál sem bannar eyrnamerkta tekjustofna. (Forseti hringir.) Svo er ég líka sammála hv. þingmanni varðandi Avinor og ég þyrfti bara að fá að lesa þessa skýrslu sem hv. þingmaður tók þátt í að skrifa.