samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir prýðisgóða ræðu og þakka honum jafnframt fyrir samstarfið ef ég skyldi gleyma því í lok þessa litla innleggs sem ég ætla að vera með hérna. Það hefur ekki verið mikið komið inn á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins í umræðu hér, alla vega ekki þegar ég hef verið í þingsal. Það er alveg rétt sem þingmaðurinn segir að þetta er að mestu leyti ófjármagnað, Alþingi ekki veittar fjárheimildir og manni skilst að það eigi að fjármagna þetta með veggjöldum, tafagjöldum og einhverju svona og það er innviðaráðherra sem undirritar samkomulag við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu án aðkomu þingsins. Það er frekar skrýtið.
Mig langar að spyrja þingmanninn þar sem fé er af skornum skammti og við vitum um fjárausturinn sem er t.d. að fara í borgarlínuna (Forseti hringir.) og það er líka vitað um hagkvæmari hágæða almenningssamgöngur sem eru á borðinu, sem eru kannski einn þriðji af þessum mikla kostnaði: (Forseti hringir.) Telur þingmaðurinn ekki bara einboðið að skoðaðar (Forseti hringir.) verði hagkvæmari leiðir en að fara í þennan borgarlínufjáraustur eins og staðan er núna?
(Forseti (EÁs): Forseti vill benda hv. þingmanni á að ræðutíminn er ein mínúta.)