samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir kveðjurnar og þakka sömuleiðis öllum sem ég hef unnið með hér fyrir gott samstarf. En samgöngusáttmálinn, já, það kemur verulega á óvart að þetta er fyrsta samgönguáætlunin sem fjallað er um síðan að framkvæmdarvaldið eða ráðherrarnir skrifuðu undir með framkvæmdastjóra sveitarfélaganna uppfærslu á samgöngusáttmálanum upp á 311 milljarða og samt er það ekki rætt hérna. Samgöngusáttmálinn er upp á svipaða upphæð og öll samgönguáætlun. Á hann ekki að fá umfjöllun á Alþingi Íslendinga? Jú, það virkjast engin fjárheimild nema hann fái umfjöllun en Alþingi Íslendinga hefur aldrei fjallað um hann og það er engin framkvæmdaáætlun hér. Hvort peningunum væri ekki betur varið hérna er einmitt samtalið sem við áttum að taka hér. Ef framkvæmdataflan hefði verið hér inni þá hefðum við getað rætt hvort það hefði ekki verið hægt að verja peningunum á hagkvæmari hátt og hvort við vildum samþykkja þessa dýru leið eða hvort þingið hefði sagt: Stopp, nei, þið verðið að finna hagkvæmari leið. Það skortir því við höfum ekki haft framkvæmdatöfluna inni í samgönguáætlun.