samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég skal reyna að vera innan tímamarka núna. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Í þessu andsvari mínu langar mig að ræða aðeins við hann um innviðafélagið vegna þess að ég heyri að hann hefur skoðanir á því. Ég hef nefnilega velt því fyrir mér hvort hæstv. innviðaráðherra hafi kannski verið með of háleitar hugmyndir varðandi hvað hægt er að fela þessu innviðafélagi að gera. Hann getur ekki falið innviðafélaginu að gera nokkurn skapaðan hlut vegna þess að félagið á víst að ákveða sjálft hvaða verkefni það tekur sér fyrir hendur og verkefnin þurfa að standast markaðspróf. Innviðafélagið mun væntanlega heyra undir fjármálaráðherra. Getur þingmaðurinn farið betur yfir nákvæmlega hvaða áhyggjur hann hefur af áætlaðri uppbyggingu þessa innviðafélags og hvernig hægt væri að gera hlutina betur heldur en til stendur?