157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:41]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Innviðafélag snýst almennt um það að fá helstu hagaðila saman að borðinu og þeir finna hagkvæmustu leiðina til að fara í framkvæmdir og fá hagkvæmustu fjármögnunina. Það hefur verið gert núna t.d. með Eyjagöng, þannig að besta leiðin væri fyrir ríkið að tryggja löggjöf sem myndi heimila félögum eins og Eyjagöngum eða öðrum sambærilegum innviðafélögum að fara í samstarf við ríkið um innviðaframkvæmdir af því að því minni sem aðkoma ríkisins er því einfaldara og skilvirkara verður framkvæmdaferlið. Það sem ég hef mestar áhyggjur af núna er að það er einhvern veginn verið að setja framkvæmdir, bara til að afsaka sig núna, inn í innviðafélagið án þess að þessi markaðskönnun sé búin að fara fram, þannig að við erum að samþykkja eitthvað hér af því að það á að redda öllu en svo á eftir að kanna hvort það gangi upp eða ekki. Og allt á forsendum ríkisins, þannig að þetta er bara flækjustig og ýtir þeim sem eru búnir að vinna vinnuna frá eins og Eyjagöngum.