samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta svar. Ég ætlaði að spyrja hann í seinna andsvari örlítið um ferjuáætlun og siglingar til Vestmannaeyja, hann kom aðeins inn á það í sinni ræðu, og hvort hann sé sammála mér um að allar þessar aðgerðir sem ráðherra hefur verið að kynna hvað varðar Vestmannaeyjar séu nú frekar í orði en á borði vegna þess að þær eru ófjármagnaðar, eins og t.d. ferjuáætlunin, endurnýjun á ferjum. Jú, jú, ráðherra ætlar að stofna viðbragðshóp. Frekari dýpkun en samkvæmt útboðinu er það ekki fjármagnað. Fleira má nefna eins og endurbætur á Landeyjahöfn sem eru komnar mótaðri tillögur núna um, um hvað beri að gera. Þetta er ekki fjármagnað þannig að Vestmannaeyingar eru ekki í raun og veru að sjá fram á lagfæringar á sínum samgöngumálum miðað við fjármögnun á hugmyndum sem eru uppi, sem eru raunverulega bara hugmyndir núna.
En í lokin ætlaði ég, frú forseti, ef þetta er mitt síðasta andsvar gagnvart þessum hv. þingmanni að þakka honum fyrir samveruna og samvinnuna hér á þingi en ég vonast til að við munum eiga áfram gott samstarf á nýjum vettvangi.