samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka sömuleiðis hv. þingmanni fyrir mjög gott, árangursríkt og lærdómsríkt samstarf og fyrir góðar spurningar varðandi Vestmannaeyjar og samgöngur þangað. Það er alveg rétt, eins og ég kom inn á hér áðan, að það byggðarlag sem fékk hæsta skattareikninginn á sig í veiðigjaldaumræðunni voru Vestmannaeyjar. Það voru teknir gríðarlegir fjármunir út úr þessu byggðarlagi og dregið úr fjárfestingum. En þarna er samt mikil fjárfesting eins og í landeldi. Og hvað sjá þeir í samgönguáætlun? Allir þeir hlutir sem hv. þingmaður nefndi eru ófjármagnaðir. Það er ekki nein alvöruframtíðarsýn þarna, nema það er ágætisdýpkunarsamningur, þessi nýi, en hann tekur ekki gildi fyrr en í haust. Það má fagna því. Annars er samdráttur. Þetta eru sagt sem almenningssamgöngur. Það sem mér finnst líka vont er að það sé ekki búið að tryggja 350 millj. kr. framlagið til Eyjaganga til að halda rannsóknum á fullri ferð áfram sem yrði besta framtíðarlausnin. Það er kannski það eina sem ég vildi bæta við upptalningu hv. þingmanns. Þetta eru kaldar kveðjur og sýnir algjört þrotleysi þessarar ríkisstjórnar í málefnum Vestmannaeyja.