samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni einnig fyrir gott samstarf. Það hefur verið árangursríkt í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Við skulum bara hafa staðreyndir á hreinu. Ég fór yfir þær allar hér áðan. Mínar hugmyndir hafa alltaf verið þær að fjármögnunin með veggjöldum færi í þann veg þar sem þau eru tekin og það væri hægt að hraða framkvæmdum og það ætti að draga úr álögum á sama tíma. En það sem er í gangi núna er að það er verið er að hækka álögur, svo er komið með innviðafélag. Það eru sett á vörugjöld og kílómetragjald og svo er innviðafélaginu bætt ofan á. Það er vissulega verið að tala um til að flýta framkvæmdum að rukka í Hvalfjarðargöng af því að það á að byggja önnur göng, það á að rukka Suðurlandsveg af því að það er verið að byggja Ölfusárbrú. En svo er heimilt annaðhvort að setja tugi milljarða úr ríkissjóði sem eru ekki til og er ekki gert ráð fyrir í fjármálaáætlun inn í innviðafélagið eða að setja þegar byggðar framkvæmdir eins og Reykjanesbraut inn sem er verið að seinka til 2031. Það er því verið að seinka Reykjanesbrautinni þannig að annaðhvort verður að setja Reykjanesbrautina inn og rukka eða setja tugi milljóna inn í félagið svo það gangi upp og það er ekkert, ekki ein króna, í eigin fé félagsins í fjármálaáætlun, þannig að ég bið hv. þingmann að segja mér hvar ég er að fara með rangt mál.