157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

staða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna við mögulega inngöngu Íslands í ESB.

[10:34]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og ég tek undir með honum að þetta er mikilvæg atkvæðagreiðsla í ágúst. Hún snýst um það hvort við eigum, einmitt eins og hv. þingmaður sagði, að hefja samningaviðræður að nýju; hvort við eigum í stað getgátna að fá staðreyndir á borðið til að almenningur og alþjóð geti einfaldlega kynnt sér það hvað samningur við Evrópusambandið felur í sér. Við það, að mínu mati, á enginn að vera hræddur. Út frá prinsippinu um fullveldi þjóða: Ég vil m.a. hafa í huga ákvörðun Austur-Evrópuríkja að ganga í NATO og ákvörðun Finna og Svía að ganga í NATO. Austur-Evrópa ákvað að fara bæði í Evrópusambandið og NATO. Úkraína hóf að sækja um eftir að stríðið byrjaði — reyndar höfðu þau áður sótt um aðild að NATO en sóttu líka um Evrópusambandið. Mér þætti það skrýtið ef Íslendingar ættu að spyrja aðrar þjóðir heimildar um það hvað við eigum að gera í okkar utanríkismálum svo lengi sem við erum að taka ákvörðun út frá hagsmunum landsins og það tel ég okkur einmitt vera að gera. Það er ástæðan fyrir því að við erum að flýta m.a. þjóðaratkvæðagreiðslunni. Það er einfaldlega út af því að það er margt búið að breytast í heiminum á síðasta einu og hálfu ári. Tollar, viðskipti hafa verið vopnvædd, það er utan og stendur utan við til að mynda EES-samninginn sem lýtur eingöngu að innri markaðnum. Evrópusambandið og Evrópuríkin hafa svo sannarlega stigið upp og höfðu líka ástæðu til að gera það þegar kemur að varnar- og öryggismálum. Það eru þessir stóru þættir; hvernig við getum einmitt tryggt efnahagslegt öryggi okkar Íslendinga, tryggt aðgang okkar fyrirtækja að öllum mörkuðum án þess að vera tolluð í drasl, tryggt það að við eigum aðgang að til að mynda stöðugum gjaldmiðli. (Forseti hringir.) Allt þetta er undir m.a. varnar- og öryggismálum sem ég kem að á eftir. Mér finnst það bara út frá prinsippinu þá erum það við Íslendingar sem metum okkar hagsmuni og hvernig við styrkjum okkar fullveldi. (Forseti hringir.) Það gerðum við 1949, það gerðum við 1970 með inngöngunni jafnt og það gerðum við með því að samþykkja EES-samninginn 1992.

(Forseti (ÞSv): Forseti minnir á að virða ræðutímann.)