staða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna við mögulega inngöngu Íslands í ESB.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svarið. Ég var ekki að spyrja um það hvort við ættum að leita eftir heimild annarra þjóða. Að sjálfsögðu erum við ekki að leita eftir heimild annarra þjóða til að sækja um inngöngu í Evrópusambandið. Það er náttúrlega bara ákvörðun sem við tökum sjálf. Það sem ég var hins vegar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra að var hvort það hefði verið samtal þar á milli og hvort varnarsamningurinn við Bandaríkin myndi halda sér ef Ísland gengi í Evrópusambandið. Ef stjórnvöld í Bandaríkjunum myndu komast að þeirri niðurstöðu að það væri ekki lengur eðlilegt að þau bæru sérstaka ábyrgð á vörnum eins ESB-ríkis og núverandi varnarsamningur yrði leystur af hólmi með almennum samstarfssamningi sambærilegum þeim og önnur ríki ESB hafa, þá spyr ég bara: Telur ráðherrann að öryggishagsmunir Íslands yrðu jafn vel tryggðir og í dag? Ef svo er, hvaða gögn eða greiningar styðja þá niðurstöðu?