staða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna við mögulega inngöngu Íslands í ESB.
Virðulegi forseti. Ég vil bara undirstrika það að Evrópusambandsaðild myndi hafa engin áhrif, engu breyta um þann samning sem er í gildi milli Bandaríkjanna og Íslands, varnarsamninginn frá 1951. Ég vil undirstrika að það hefur engin áhrif á þann samning. Bandaríkin bera ábyrgð samkvæmt varnarsamningnum á að sinna öryggi og vörnum okkar Íslendinga og hafa það líka m.a. í gegnum NATO, Atlantshafsbandalagið. Þetta hefur ekki nein áhrif á það og ég vil undirstrika að öryggishagsmunir Íslands og öryggishagsmunir Bandaríkjanna eru samofnir á Norður-Atlantshafi. Við vitum að Ísland er m.a. skilgreint sem hluti af heimavarnarsvæði Bandaríkjanna. Þetta er grunnurinn að okkar góða samstarfi í meira en 75 ár við Bandaríkin þegar kemur að þessu samstarfi. En aðild að Evrópusambandinu mun engin áhrif hafa á það, þvert á móti sjáum við að mörg af þeim ríkjum sem eru innan Evrópusambandsins (Forseti hringir.) eru ekki síst hvað dyggust í sínum stuðningi við Bandaríkin, þannig að grundvöllur okkar í Atlantshafsbandalaginu liggur alveg fyrir og hann er skýr.