157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[11:13]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Eins og hv. þm. Snorri Másson fór hér yfir þá tökum við fyrir hluta ESB-reglugerðar sem varðar Schengen-samstarfið sem við erum þátttakendur í. Ég kem hér upp til að vekja athygli á því sem við fjöllum hins vegar ekki um í dag, stóran hluta reglugerðarinnar sem ESB-ríkin sitja hins vegar uppi með, reglur sem ganga út á það að dreifa álaginu af hælisleitendastraumnum sem forsvarsmenn ESB hafa látið ganga yfir álfuna, milli ESB-ríkjanna. ESB-ríkin munu standa frammi fyrir því vali að annaðhvort taka á móti fleiri hælisleitendum eða greiða eins konar sektir, bara annaðhvort eða. Yfir 10 milljónir hælisumsókna hafa borist ESB-ríkjunum undanfarinn áratug, yfir 10 milljónir. Þetta er það sem bíður okkar í fyrirheitna landinu ESB. Verður þetta meðal þess sem ríkisstjórnin ætlar að kynna fyrir landsmönnum varðandi Evrópusambandið?