útlendingar og lögreglulög.
Frú forseti. Við í Sjálfstæðisflokknum tökum Schengen-samstarfið alvarlega og viljum vera ábyrgur samstarfsaðili þar. Það er mjög mikilvægt að styrkja stjórn ytri landamæra okkar, efla samræmda framkvæmd á því sviði. Mér þykir hins vegar leitt að við í Sjálfstæðisflokknum getum ekki greitt atkvæði með málinu sökum þess hvernig það var undirbúið og unnið. Það gætti hreinlega misskilnings hér við 1. umræðu málsins um efni frumvarpsins, en það sem verra er, það vantar allt áhrifamat í frumvarpið og hvaða þýðingu efni þess og samþykkt mun hafa á fjölda hælisumsókna hér á landi. Því miður komu ekki fram sjónarmið um þetta við störf nefndarinnar og við munum sitja hjá við afgreiðslu þessa máls.