157. löggjafarþing — 119. fundur,  8. júní 2026.

útlendingar og lögreglulög.

594. mál
[11:21]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við erum hér að fara í atkvæðagreiðslu um innleiðingu ESB-reglugerðar í samræmi við Schengen sem við í Framsókn styðjum. Við teljum að það sé afar mikilvægt að fara í þessa uppfærslu á Dyflinnargerðinni sem einmitt þarf að taka gildi núna 12. júní næstkomandi. Það er því mikilvægt að hafa hana samþykkta svo að við getum einmitt vísað fólki úr landi á grundvelli Dyflinnargerðarinnar. Hins vegar er það þannig að við í þingflokki Framsóknar munum sitja hjá. Það er margt jákvætt í þessu máli, m.a. að styrkja landamærin og efla samræmda framkvæmd. Hins vegar er ýmislegt í þessu máli sem þarfnast frekari skoðunar og sem við setjum fyrirvara við. Þess vegna munum við sitja hjá að þessu sinni.