innviðafélag.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir spurninguna. Ég held að það hafi alveg komið fram í þessari yfirferð minni áðan: Mér finnst málið einfaldlega ekki orðið nógu þroskað til að geta svarað mörgum af þessum grundvallarspurningum. Ég hygg að ég og hv. þingmaður deilum t.d. því að hafa verið tiltölulega spenntir fyrir hugmyndinni um innviðafélag. Síðan kemur frumvarpið og þá er framkvæmdin á því með slíkum hætti að maður þarf að fara að spyrna á móti, maður þarf að setja niður hælana til að mögulega reyna að draga fram einhver svör, eins og hv. þingmaður fjallar hér um tiltekin dæmi. Það gefur augaleið að þetta er ekki að fara af stað strax. Það er reyndar í upptalningu hv. þingmanns eitt verkefni sem þolir enga bið. Það verður að finna einhverja leið, hvort sem er í gegnum þetta félag eða bara með einhverjum öðrum hætti; hrunvarnir á Suðurfjarðarvegi þola enga bið. Ég hygg að hv. þm. Jens Garðar Helgason sé sammála mér í því. Eftir stendur þetta, sem ég vil nú meina að hafi kannski verið meginþemað í því sem mér fannst vera allt of stutt ræða en einhverjum öðrum fannst kannski alveg nógu löng, að málið er ekki fullbúið. Málið getur ekki svarað tilteknum grundvallarspurningum. Það er ekki gott. Ég er þeirrar skoðunar, hv. þingmaður, að þarna var lagt af stað með góða hugmynd. Þess vegna nefndi ég líka í ræðu minni áðan, hv. þingmaður, að það þarf að bregðast við á öðrum sviðum líka á móti. Við getum ekki bara bætt við skatta endalaust. Á einhverjum tímapunkti er greiðsluviljinn farinn. Mér finnst það t.d. eiginlega ekkert hafa verið rætt hér; veiðigjöldin, vörugjöldin, kílómetragjaldið og þetta allt saman átti að vera innspýtingin. Svo kemur næsta mál og þá er það bara sérfélag sem ætlar líka að fara að rukka. Ég held að við verðum að taka þessa umræðu í miklu stærra samhengi. Hvert ætlum við að stefna með gjaldheimtu af ökutækjum?