innviðafélag.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans fyrra svar hér við spurningu minni. Við erum sammála um tvennt, ég og hv. þingmaður. Við erum sammála um innviðafélag, við erum sammála því að stofna innviðafélag. En það að veggjöldin bætist ofan á alla aðra skatta og skattahækkanir og gjaldahækkanir sem eru undangengnar núna er ótrúlega ósvífið gagnvart ökutækjaeigendum á Íslandi, vægast sagt. Við erum líka sammála um það að það virðist vera sem framkvæmdin á þessu félagi, framkvæmdin á lögunum og hvernig þetta á að vera, virðist ekki ganga upp.
Á flekaskilum kjördæmis okkar hv. þingmanns, Norðvesturkjördæmis, er framkvæmd sem heitir Fljótagöng sem er inni í samgönguáætlun upp á 21,5 milljarð. En af því að þetta er svokallað A3-félag, það verður dótturfélag innviðafélagsins sem er C-félag sem þarf ekki ríkisábyrgð — ábyggilega gaman fyrir fólk að reyna að átta sig á þessu sem er að horfa. Það eru engir peningar eyrnamerktir í Fljótagöng. Það er talað um fullfjármagnaða samgönguáætlun, að hér ætti að ræsa vélarnar og rjúfa kyrrstöðuna, en peningarnir koma hvergi fram. Það er ekki hægt að setja þetta félag strax inn í innviðafélagið út af 50% reglunni, eins og hv. þingmaður nefnir í ræðu sinni. Það er í rauninni alveg ótrúlegt að sjá, af því að þetta hangir síðan saman við fjármálaáætlun sem er nú hér á dagskrá líka, að allt hangir þetta saman og það eru engir peningar í Fljótagöng eða bara í jarðgöng. Maður veltir því fyrir sér: Hvað finnst hv. þingmanni um þetta? Verður niðurstaðan kannski sú þegar upp er staðið að það á ekkert að fara að hefja jarðgangaborun á Íslandi?