Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Á umrótatímum getum við þurft að leggja enn meira á okkur við að gæta hagsmuna Íslands. Það höfum við gert enda frumskylda stjórnvalda. Utanríkisráðherrar okkar sinna mörgum hlutverkum og í þeim öllum þurfa þeir að sinna bandamönnum okkar vel, hlúa að samstarfi og efla tengslin.
Þegar við Sjálfstæðismenn tókum við utanríkisráðuneytinu í tíð hv. þm. Guðlaugs Þórs Þórðarsonar var lögð stóraukin áhersla á samskipti við Bandaríkin. Áhersla var lögð á fundi í Bandaríkjunum vegna hefðbundinna utanríkismála, öryggis- og varnarmála og vegna viðskiptamála. Við tókum á móti fjölmörgum bandarískum gestum, m.a. utanríkisráðherrum í fleirtölu, varaforseta Bandaríkjanna og þingmönnum. Sérstöku efnahagssamráði var komið á fót við Bandaríkin til að efla tvíhliða samskipti á viðskipta- og efnahagssviðinu. Þetta átti auðvitað við um fleiri þjóðir; Norðurlöndin, Eystrasaltsþjóðirnar, Bretland, Kanada og vinaþjóðir í Asíu. En hagsmunir okkar gagnvart Bandaríkjunum eru margslungnir og vega þungt. Þess vegna hef ég vakið athygli á framgöngu hæstv. utanríkisráðherra og hagsmunagæslu gagnvart Bandaríkjunum. Samkvæmt svari hæstv. ráðherra við fyrirspurn minni fyrr á árinu hafði hún ferðast átta sinnum til Brussel á rúmu ári en ekki enn fundað með ráðamönnum í Washington.
Síðan er mér kunnugt um eina ferð hæstv. ráðherra til Washington sem reyndist vera sneypuför. Ég hef því lagt fram nýja fyrirspurn um ferðalög hæstv. ráðherra. Til samanburðar má nefna að ráðherrar allra Norðurlandanna hafa undanfarið átt fundi í fleirtölu með bandarískum ráðherrum. Ísland sker sig algjörlega úr í þessum efnum. Samskipti við Brussel og áhugi á Evrópusambandinu taka augljóslega sinn toll en við hljótum að gera þá kröfu að hæstv. utanríkisráðherra sinni þessari mikilvægu bandaþjóð okkar af fullum krafti og til jafns við kollega sína á Norðurlöndunum.