Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar að bregðast við ummælum hv. þm. Samfylkingarinnar, Ásu Berglindar Hjálmarsdóttur, sem eru í dreifingu á miðlunum. Þar er þingmaðurinn því ósammála að Austurland sé afgangsstærð þegar kemur að framkvæmdum til Austursvæðis í samgönguáætlun. Þar liggur einmitt vandinn. Stærstur hluti framkvæmda sem hefur farið fram á Austursvæði síðustu ár fór fram í Suðurkjördæmi í stórframkvæmdum við Hornafjarðarfljót sem verða áfram með yfir milljarð í ár en Austurland fær þar aðeins um 300 milljónir í heildarframkvæmdir. Framkvæmdir í Suðurkjördæmi eru ekki framkvæmdir á Austurlandi en taka fjármagn frá Austursvæði, Austurlandi sem hefur setið of lengi eftir hvað varðar uppbyggingu samgönguinnviða. Öxi hefur verið í undirbúningi í meira en tvo áratugi og enn á að taka átta ár í að ljúka framkvæmdinni. Suðurfjarðavegur er í slæmu ástandi, brýr þola ekki þungaflutninga, Fjarðarheiðargöng eru fullhönnuð og tilbúin til útboðs en ekki á að fara í framkvæmdir heldur á að hanna og rannsaka öll möguleg jarðgöng víða um land sem aðrar ríkisstjórnir eiga svo að fjármagna þegar kemur að framkvæmdum. Íbúar Austurlands eru langþreyttir á framkvæmdaleysi. Austurland stendur undir gríðarlegri verðmætasköpun. Fjórðungur vöruútflutningstekna þjóðarinnar, 240 milljarðar árlega, verður þar til af hendi 2,9% landsmanna. Þar eru einnig um 30% af raforkuframleiðslu landsins. Horfa verður til gríðarlegra tækifæra á Austurlandi til frekari verðmætasköpunar en það byggir á vegakerfinu og að það séu öflugir vegir, brýr þoli þungaflutninga og að samgöngur tengi allt Austurland sem eitt atvinnu- og þjónustusvæði. Á Austurlandi er einnig nálægðin við Evrópu. Vöru- og farþegaflutningar eru með Norrænu, alþjóðaflugvöllur á Egilsstöðum, mikil orkuframleiðsla og tækifæri til enn frekari orkuframleiðslu ásamt miklu landrými án jarðhræringa. Það skortir ekki tækifærin á Austurlandi heldur að þingmenn sýni vilja til að fjárfesta í innviðum Austurlands. Íbúar Austurlands eru búnir að fá sig fullsadda af framkvæmdaleysi og krefjast þess að ríkisstjórnin auki framkvæmdir á Austurlandi í komandi samgönguáætlun.