157. löggjafarþing — 120. fundur,  9. júní 2026.

Störf þingsins.

[12:56]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Raforkumál á Vestfjörðum hafa oft verið til umræðu í þessum þingsal vegna óboðlegrar stöðu sem er í stuttu máli sú að flutningskerfi og dreifikerfi Vestfjarða er veikt. Fjórðungurinn er ekki sjálfbær í orkuframleiðslu, takmörkuð afhendingargeta hamlar uppbyggingu og tíðar bilanir og rafmagnsleysi eru kostnaðarsamar fyrir samfélagið. Þótt verkefnið sé stórt þá hefur náðst verulegur árangur þar sem hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti í síðustu viku á Orkuþingi, sem haldið var á Ísafirði, að á fyrsta eina og hálfa ári kjörtímabilsins hafi 600 millj. kr. verið veittar til jarðhitaleitar, nýtingar og varmadæluvæðingar á Vestfjörðum í gegnum Loftslags- og orkusjóð. Þegar hefur náðst góður árangur á Ísafirði og Patreksfirði. Atvinnuveganefnd er búin að afgreiða frumvarp ráðherra um jöfnun dreifikostnaðar sem hefur mikla þýðingu fyrir Vestfirðinga. Þar erum við að lækka raforkukostnað heimila, fyrirtækja og sveitarfélaga í dreifbýli og létta líka á jöfnunargjaldinu á öllum heimilum sem reiða sig á rafhitun eða kyntar veitur, sem þýðir lægri raforkureikning hjá nánast hverjum einasta íbúa á Vestfjörðum. Ráðherra boðar líka breytingu á því hvernig kerfisframlag nýrra virkjana er reiknað til að liðka fyrir orkuframleiðslu á Vestfjörðum. Það er eina raunhæfa leiðin að orkusjálfstæði og sú lausn sem uppfyllir kröfur okkar um meiri vöxt og verðmætasköpun, aukinn kerfisstyrk, afhendingargæði, afhendingaröryggi, aukna hagkvæmni, aukið áfallaþol og möguleikann á eyjakeyrslu. Þetta er eina lausnin sem hjálpar okkur að ná öllum þessum markmiðum samtímis.

Virðulegi forseti. Ráðherra hefur sýnt með fyrri ákvörðunum sínum og framtíðarsýn einbeittan vilja og festu til að leysa úr áralöngum hnútum. Ég hvet hæstv. ráðherra til að halda áfram sínum góðu verkum fyrir aukinn vöxt og verðmætasköpun, fyrir samfélagið á Vestfjörðum og fyrir Ísland.