Störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil nýta tækifærið og þakka Vilhjálmi Árnasyni, fráfarandi þingmanni, fyrir vel unnin og óeigingjörn störf í þágu þjóðarinnar undanfarin 13 ár. Ég veit að hann mun láta gott af sér leiða á nýjum vettvangi líkt og hann hefur gert á Alþingi. Það er heiður að taka sæti á Alþingi. Þing okkar Íslendinga er elsta þing heims og við eigum að bera virðingu fyrir því. Þessu hlutverki fylgir mikil ábyrgð og ég ætla mér að standa undir þeirri ábyrgð.
Við fengum sjálfstæði frá Dönum árið 1944 og það eru ekki liðin 100 ár síðan. Okkur hefur gengið vel á þessum 82 árum. Við höfum farið úr torfkofum og orðið eitt mesta velsældarsamfélag heims. Fjölbreytt atvinnulíf dafnar og þar má nefna hugverkaiðnaðinn sem er orðinn að einni stoð efnahagsins hérna á Íslandi. Ætlum við í alvörunni að gefast upp á verkefninu og hlaupa inn í tollabandalag í Evrópu? Við eigum að standa á okkar eigin fótum og halda í sjálfstæði okkar, okkar löggjafarvald, sem við megum ekki framselja til Evrópu eins og einhverjir hérna inni láta sig dreyma um. Breytt heimsmynd er orðasamband sem við heyrum oft í dag. Samkvæmt ákveðnum aðilum hér í þessum sal eigum við að skipa okkur með þjóðum sem standa með lýðræði og mannréttindum en við Íslendingar stöndum með lýðræði og mannréttindum nú þegar. Við höfum alltaf gert það og munum halda því áfram utan ESB. Hvort sem fólki kann að þykja mögulegir samningar hagstæðir eða ekki og hvort sem okkur yrði lofað undanþágum eða sérlausnum breytir það ekki eðli og tilgangi eða grundvallarhugmyndum Evrópusambandsins. Mér hugnast ekki miðstýring frá Brussel. Mér hugnast ekki að ákvörðunarvaldið færist frá íslenskum stjórnvöldum til einstaklinga sem setja hagsmuni Íslands ekki í fyrsta sæti. Mér hugnast ekki að stjórnarskráin okkar víki fyrir reglum Evrópusambandsins. Höldum áfram að vera Íslendingar, höldum í sjálfstæði okkar og stöndum á eigin fótum sem Íslendingar gagnvart breyttri heimsmynd. Annars getum við bara gefist upp, pakkað saman og flutt til Brussel.