útlendingar og lögreglulög.
Virðulegur forseti. Ég þarf kannski að fá örlítið betri útskýringu á því sem hér um ræðir í ljósi þess að við vorum að samþykkja afbrigði hér með þetta nefndarálit þannig að ég er fyrst að renna yfir þetta núna. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Eru engar breytingar hérna? Það er ekkert sem er að taka breytingum í málinu frá því að við kláruðum 2. umræðu þannig að ég ætla að biðja hv. þingmann um að fara örlítið betur yfir það. Hvað er það nákvæmlega sem gerðist milli 2. og 3. umræðu? Hvað er það sem hv. þingmaður var að árétta með ræðu sinni og í nefndarálitinu? Ég biðst afsökunar ef ég hef ekki tekið nógu vel eftir. Það er svolítið mikill hraði á þessu máli og ég hafði ekki kynnt mér nefndarálitið áður.