samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar svo ljómandi góðu yfirferð yfir samgönguáætlun, sérstaklega það sem snertir þó höfuðborg lýðveldisins, Reykjavík. Hv. þingmaður sagði að Reykvíkingar ættu nóg af byggingarlandi og þar get ég verið sammála. Það er gaman að nefna að sveitarfélagið Seltjarnarnes er 200 hektarar, Geldinganes er 220 hektarar og síðan er líka gaman að nefna að Viðey er 160 hektarar. Það er kannski ekki vinsælt í Reykjavík en ég hef alltaf horft til þess að það væri hægt að gera skemmtilega byggð í Viðey.
Eins og hefur komið fram í máli hv. þingmanns og maður hefur svo sem heyrt á tali hv. þingmanna Miðflokksins og hefur svo sem verið gagnrýnt hér almennt af Sjálfstæðisflokknum, held ég líka, og fleiri flokkum varðandi borgarlínuna og þessar þrengingar. Í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur er það þannig að þó að það sé að koma borgarlína þá er það yfirlýst stefna að borgarlínan eigi ekki að þrengja að umferð. Í rauninni er það pólitísk ákvörðun þess meiri hluta sem var, að þrengja að umferð. Það er í rauninni bara aðförin að fjölskyldubílnum.
Við þingmenn landsbyggðarinnar höfum horft til þess og sveitarstjórnarmenn um allt land hafa horft að hluta til með öfundaraugum til þess að það sé einhvers konar samgöngusáttmáli um uppbyggingu samgöngumannvirkja á ákveðnu svæði eins og hér á höfuðborgarsvæðinu. Menn hafa kallað eftir því annars staðar á landinu. Hv. þingmaður talar um að þeir hafi verið fyrirferðarmiklir, landsbyggðarþingmennirnir, af því að samgönguáætlun breytist svo ört (Forseti hringir.) og það sem átti að koma kemur síðan ekki. Ættu menn frekar að vera með einhvers konar samgöngusáttmála og fyrirsjáanleika? Mig langar bara að spyrja hv. þingmann aðeins út í það.