157. löggjafarþing — 121. fundur,  9. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:29]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að ég láti það bíða að bregðast að fullu við athugasemdum hv. þingmanns um hug nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur á því að þrengja ekki að fjölskyldubílnum með borgarlínunni, enda er það einmitt umræðuefni næstu ræðu minnar. Það má þó geta þess að þetta kom auðvitað upp í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga þar sem einhverjir höfðu áttað sig á því að jú, tilgangur verkefnisins væri, ekki bara í Reykjavík heldur í nágrannasveitarfélögunum, að þrengja að fjölskyldubílnum og bent var á Borgarholtsbrautina í Kópavogi og aðra vegi og götur í þeim bæ í því samhengi. En það bíður næstu ræðu minnar því að ég vil frekar nota tækifærið til að taka undir með hv. þingmanni varðandi þann mun sem birtist hér á nálgun stjórnvalda gagnvart hugmyndum Samfylkingarinnar í Reykjavík með þessum höfuðborgarsáttmála svokallaða og svo gagnvart landsbyggðinni. Við, ég og hv. þm. Jens Garðar Helgason, segjum náttúrlega farir okkar ekki sléttar fyrir hönd okkar kjördæmis, eins og komið hefur fram í umræðunni og hv. þingmaður og fleiri hafa gert prýðilega grein fyrir. En ég held að það sé óhætt að segja að við berum líka hag annarra landsbyggðarkjördæma fyrir brjósti og ég tek einfaldlega undir með ábendingu eða athugasemd hv. þingmanns, og í raun Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar sem vísað var í. Ef þetta á að vera leiðin til þess að tryggja að eitthvað gerist, að mál nái fram að ganga, þá þarf samgöngusáttmála fyrir Vestfirði, fyrir Austurland, fyrir Norðurland eystra og Norðurland vestra o.s.frv. því að það er augljóst að íbúar á landsbyggðinni geta ekki reitt sig á samgönguáætlun sem breytist í sífellu og sérstaklega ekki miðað við það upplegg sem hér er til umræðu varðandi innviðafélag.